Kristrún Ýr Holm gengur til liðs við Þrótt

Knattspyrnufélagið Þróttur hefur náð samkomulagi við Kristrún Ýr Holm, sem gengur nú til liðs við félagið fyrir komandi tímabil.

Kristrún Ýr er einn reyndasti leikmaður íslenskrar kvennaknattspyrnu og kemur til Þróttar eftir langan og farsælan feril með Keflavík, þar sem hún var um árabil lykilleikmaður og fyrirliði liðsins. Hún hefur leikið í efstu deild um áraraðir og vakið atygli fyrir leiðtogahæfileika, mikla vinnusemi og fagmennsku – jafnt innan sem utan vallar. Alls á hún að baki um 270 leiki í meistaraflokki, þar af 91 í efstu deild.

Eftir 15 ára samfellu hjá Keflavík tilkynnti Kristrún Ýr síðastliðið haust að hún myndi láta gott heita og nú liggur leið hennar í Laugardalinn og til Þróttar en fjölmörg félög leituðust eftir kröftum hennar.

Samhliða knattspyrnuferlinum hefur Kristrún Ýr lagt stund á doktorsnám sem miðar að því að bæta snemmsgreiningu brjóstakrabbameins, verkefni sem undirstrikar metnað hennar og áherslu á samfélagslega ábyrgð utan íþróttanna.

Kristján Kristjánsson formaður Knd. Þróttar segir: ,,Við erum mjög ánægð með að fá Kristrún til liðs við Þrótt. Ekki aðeins vegna þess að hún er góður leikmaður sem styrkir kvennalið félagsins, heldur líka vegna þess í okkar hóp bætist manneskja sem verður dýrmæt viðbót við félagið og uppbyggingu þess á komandi misserum. Kristrún er hæfileikarík og metnaðarfull og mikill leiðtogi sem á eftir að blómstra hjá okkur. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna og hlökkum til samstarfsins.”