Styrktarsjóður Hringfarans stofnaði föstudaginn 9. október Knattspyrnusjóð Ingva Sveinssonar og lagði honum til átta milljóna króna stofnframlag til stuðnings barna- og unglingastarfi Þróttar. Sjóðurinn er stofnaður til heiðurs Ingva fyrir ómetanlegt og óeigingjarnt starf hans í þágu félagsins.
Stofnun sjóðsins var fagnað við fjölmenna og gleðilega móttöku á heimili hjónanna Kristjáns Gíslasonar og Ásdísar Rósu Baldursdóttur í Sæviðarsundi. Hjónin standa að Styrktarsjóði Hringfarans og vilja með þessu framtaki bæði styðja við unga iðkendur Þróttar og heiðra Ingva fyrir framlag hans í gegnum tíðina.
Ingvi hefur verið Þróttari alla sína ævi og lagt félaginu lið sem leikmaður og þjálfari. Síðustu 20 ár hefur hann verið stoð og stytta við uppbyggingu starf Þróttar og lagt ómetanlegt starf af mörkum í þágu ungs knattspyrnufólks. Hann hefur jafnframt starfað sem kennari við Langholtsskóla um árabil.


Hlýja Ingva og góðvild í garð yngri iðkenda hefur einnig skilið eftir sig fjölmargar góðar minningar hjá þeim sem ólust upp í félaginu. Stofnun sjóðsins er falleg viðurkenning á starfi hans og þeim áhrifum sem hann hefur haft á unga Þróttara.
„Mér þykir afar vænt um þennan heiður og er innilega þakklátur Kristjáni og Ásdísi fyrir hlýhug þeirra og örlæti. Þróttur hefur verið mjög stór hluti af lífi mínu síðan ég byrjaði að æfa 6 ára gamall við Holtaveg, og það hefur gefið mér mikið að vinna með unga fólkinu í félaginu. Það gleður mig að þessi sjóður sé nú til og geti nú stutt við þetta mikilvæga starf og skapað næstu kynslóðum Þróttara enn fleiri tækifæri. Ég mun lofa að standa mig í þessu flotta verkefni.“ segir Ingvi Sveinsson.
Ingva er treyst fyrir ráðstöfun úr sjóðnum, ungu knattspyrnufólki í Þrótti til heilla. Stjórn sjóðsins skipa ásamt Ingva formanni, Ásdís Rósa Baldursdóttir, Baldur Kristjánsson og Bjarnólfur Lárusson, formaður Þróttar.
Félagsstarf sem eflir börn og unglinga
Haft er eftir Ásdísi að það sé þeim hjónum mikið gleðiefni að geta stutt við barna- og unglingastarf Þróttar:
„Við trúum því að öflugt og heilbrigt félagsstarf efli börn og unglinga, styrki sjálfsmynd þeirra og gefi þeim vináttu, samkennd og tilfinningu fyrir því að tilheyra. Við teljum jafnframt að í slíku starfi felist mikil forvörn.“
Ásdís bætir við:
„Það er okkur sönn ánægja að heiðra Ingva með þessum hætti og leggja okkar af mörkum til framtíðar barna og unglinga hjá Þrótti.“
Bjarnólfur Lárusson, formaður Þróttar, fagnaði einnig framtakinu:
„Þetta fallega framtak snýst um þakklæti til samfélagsins og þá hugsjón að gefa til baka, til að tryggja að komandi kynslóðir njóti þeirra tækifæra sem aðrir hafa skapað fyrir okkur.“


Hugsjón Hringfarans
Kristján, sem er þekktur sem Hringfarinn, hefur ferðast víða um heim á mótorhjóli og miðlað reynslu sinni í bókum og sjónvarpsþáttum. Þau Ásdís stofnuðu Styrktarsjóð Hringfarans til að láta gott af sér leiða.
Tekjur Styrktarsjóðs Hringfarans koma af sölu bóka Hringfarans og heimildamynda sem sýndar hafa verið á RÚV. Kristján og Ásdís standa sjálf straum af öllum framleiðslukostnaði verkefnanna og því renna tekjurnar óskiptar í sjóðinn.
Stuðningur við börn og ungmenni er rauður þráður í starfi Styrktarsjóðs Hringfarans. Sjóðurinn hefur lagt fjölmörgum forvarna-, mennta- og æskulýðsverkefnum lið, bæði á Íslandi og í Afríku. Með stofnun Knattspyrnusjóðs Ingva Sveinssonar bætist barna- og unglingastarf Þróttar í þann hóp.
Þróttur færir Kristjáni og Ásdísi innilegar þakkir fyrir rausnarlegt framlag og hlýhug þeirra til félagsins. Stofnun sjóðsins er dýrmætur stuðningur við barna- og unglingastarfið og verðskulduð viðurkenning á framlagi Ingva Sveinssonar til Þróttar.
Nánar um Hringfarann og starfsemi hans.
Við þökkum Baldri Kristjánssyni ljósmyndara kærlega fyrir fallegar myndir sem fylgja fréttinni.























Leave a Reply