Fréttir

Áramótaávarp 2024: Óásættanlegar árásir Reykjavíkurborgar á Þróttarasamfélagið

Kæru Þróttarar,Árið 2024 er nú senn á enda, og horfum við fram á nýtt ár með gleði og bjartsýni. Árið hefur verið viðburðaríkt, en í byrjun árs kynnti aðalstjórn Þróttar nýja stefnu félagsins sem mun leiða starfsemina inn í framtíðina. … Read More

Íþróttamaður ársins 2024 valinn á gamlársdag

Íþróttamaður Þróttar 2024 verður tilkynntur við hátíðlega athöfn í Þróttarheimilinu á gamlársdag, þriðjudaginn 31. desember klukkan 13:00. Á sama tíma verða veittar viðurkenningar fyrir frábæran árangur í afrekstarfinu okkar á árinu sem er að líða og þá verða félagsmenn heiðraðir … Read More

Flugeldasala

Flugeldasalan í ár er í samstarfi við Gullborg Flugelda. Skotkökur, blys, rakettur, gos og fleira er hægt að panta á https://trottur.gullborg-flugeldar.com. Síðan sækir þú pöntunina þína í flugeldasöluna á bílastæði Þróttar að Engjavegi 7. Athugið að nauðsynlegt er að ganga … Read More

Aðalfundur knattspyrnudeildar

Aðalfundur knattspyrnudeildar verður haldinn 30. desember kl 16:00 Dagskrá aðalfundar: Formaður knattspyrnudeildar setur fundinn. Kosinn fundarstjóri og fundarritari. Fundargerð síðasta aðalfundar borin undir atkvæði. Formaður flytur skýrslu um liðið ár og gjaldkeri skýrir reikninga félagsins. Kosning stjórnar knattspyrnudeildar Kosning formanns … Read More

Jólaknattspyrnuskóli Þróttar

Þróttur verður með Jólaknattspyrnuskóla fyrir 5.-7.flokk, dagana 27 des, 28 des og 30 des. Sömu daga verða einnig Séræfingar fyrir 3. og 4. flokk. Skólastjórar verða þeir Baldur Hannes Stefánsson og Kári Kristjánsson leikmenn meistaraflokks Þróttar. Dagskráin fyrir 5.-7. flokk.Húsið … Read More

Mist Funadóttir heim í Þrótt

Mist Funadóttir hefur skrifað undir samning um að leika með Þrótti næstu 3 árin. Mist er uppalinn í Þrótti og snýr því heim eftir að hafa undanfarin tvö ár leikið með Fylki. Mist er öflugur vinstri bakvörður, fædd 2003, en hefur þegar öðlast mikla … Read More

Brynja Rán Knudsen áfram hjá Þrótti

Brynja Rán Knudsen hefur skrifað undir nýjan 2ja ára samning við Þrótt og mun því vera hjá félaginu út árið 2026. Brynja er fædd 2007 og er því enn gjaldgeng í 2fl., en hefur engu að síður öðlast mikla reynslu … Read More

Liam Daði framlengir við Þrótt

Liam Daði Jeffs hefur skrifað undir nýjan 2ja ára samning við Þrótt og verður því hjá félaginu út árið 2026. Liam er fæddur árið 2006, er enn gjaldgengur í 2fl. en sló í gegn í mfl. félagsins síðastliðið sumar þar … Read More

Þórdís Elva Ágústsdóttir til liðs við Þrótt

Þórdís Elva Ágústsdóttir hefur skrifað undir 2ja ára samning um að leika með Þrótti. Þórdís kemur til Þróttar frá Svíþjóð þar sem hún lék í sænsku úrvalsdeildinni með Växjö DFF. Áður varð hún Íslandsmeistari og bikarmeistari með Val og óhætt … Read More

Guðmundur Axel kveður Þrótt

Knattspyrnudeild Þróttar og Guðmundur Axel Hilmarsson hafa komist að sameinginlegri niðurstöðu um að loka samningi Guðmundar við félagið frá og með þessu hausti. Guðmundur er uppalinn í Þrótti og hefur leikið með félaginu mestan part síns ferils en hefur einnig … Read More