Knattspyrnufélagið Þróttur fagnar ákvörðun borgarráðs Reykjavíkurborgar um að falla frá fyrri áformum um þróun og byggingu svokallaðs safnskóla á unglingastigi á svæðinu sem nefnt er Þríhyrningurinn í Laugardal. Þróttur vill koma á framfæri þakklæti til Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra fyrir … Read More
Tennis
Óskum eftir tilnefningum – Þróttari ársins 2025
Á gamlársdag mun Knattspyrnufélagið Þróttur, líkt og undanfarin ár, heiðra einstaklinga sem hafa lagt sitt af mörkum til félagsins með óeigingjörnum störfum, jákvæðu hugarfari og óbilandi Þróttaranda. Þar á meðal verður veitt nafnbótin Þróttari ársins 2025, ein virðulegasta viðurkenning félagsins. … Read More
Minnum á Aðalfundinn á morgun 29.maí
Knattspyrnufélagið Þróttur boðar til aðalfundar. 📍 Staðsetning: Veislusalur Þróttar, Engjavegi 7, 104 Reykjavík 🕓 Tímasetning: Húsið opnar kl. 14:30 – fundur hefst kl. 15:00 Þróttur mun bjóða upp á léttar veitingar á fundinum og mun svo bjóða öllum fundargestum á leik … Read More
Þorrablót Laugardals 1.feb – miðasala hafin
Þvílíka stuðið framundan í Laugardalnum!! Þorrablót Laugardal verður haldið þann 1. febrúar næstkomandi. Við hvetjum alla íbúa Laugardals og stuðningsmenn nær og fjær til að sameinast á þessum frábæra viðburði. Í fyrra komust færri að en vildu, tryggið ykkur því … Read More
Minningarmót um Braga Leif Hauksson
Tennisdeild Þróttar efndi til tennismóts laugardaginn 12. ágúst til minningar um Braga Leif Hauksson sem lést fyrr á árinu. Hann var liðsmaður og drifkraftur deildarinnar s.l. aldarfjórðung. Þátttaka var góð. Yfir 20 keppendur á öllum aldri úr öllum tennisfélögunum og … Read More
Bragi L. Hauksson, formaður tennisdeildar látinn
Bragi Leifur Hauksson formaður tennisdeildar Þróttar andaðist 20. júní sl. Hann verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 13. júlí kl. 13. Bragi var með ódrepandi áhuga á tennis og ætíð reiðubúinn til starfa og leið ekki á löngu uns Bragi var … Read More
Skemmtimót Þróttar
Það verður stutt skemmtimót hjá okkur í frábæru veðri í haustsólinni núna á fimmtudag kl. 17. Hin góðkunna Steinunn Garðarsdóttir stýrir mótinu sem tryggir frábært veður. Staður og stund: Tennisvellir Þróttar í Laugardalnum fimmtudaginn 15. sept. kl 17-20 Spilaður verður … Read More
Heiðurs- og gullfélagar
Aðalstjórn félagsins ákvað nú í desember að fenginni tillögu frá sögu – og minjanefnd að veita eftirfarandi Þrótturum gullmerki félagsins og gera Magnús Pétursson að heiðursfélaga. Viðurkenningarnar voru afhentar á gamlársdag við hátíðlega athöfn í félagsheimilinu. Atli Arason varð fyrsti formaður … Read More
Jólafrí æfinga og opnunartími félagsheimilis
Frí verður gefið frá æfingum í knattspyrnu, blaki og handbolta um jól og áramót. Félagsheimilið lokar kl 12:00 á Þorláksmessu og opnar að nýju mánudaginn 3.janúar. Sérstakur opnunartími vegna flugeldasölu verður auglýstur síðar. Knattspyrna – Frí verður gefið frá æfingum … Read More
Jafnfréttisfræðslufundur í kvöld 25.11– streymt á Þróttarastreyminu
Í kvöld kl 20:00 verður fræðslukvöld í félagsheimili Þróttar og ber fræðsluerindið nafnið “Klefamenning og fótboltinn” Þorsteinn V Einarsson, #karlmennskan verður með fyrirlestur og verður fræðslufundinum jafnframt streymt á Þróttarastreyminu. Streymið má finna hér