Flugeldasala Þróttar verður við félagsheimili Þróttar líkt og undanfarin ár. Þessi sala skiptir félagið gríðarlega miklu máli. Vonandi sjá sem flestir sér fært að kaupa nokkra flugelda og styrkja um leið félagið. Opnunartímar: Þriðjudagur 29. des kl 14.00 – 22.00 … Read More
Fréttir

Gleðileg jól
Þróttur óskar Þrótturum, styrktaraðilum og velunnurum nær og fjær gleðilegra jóla og þakkar fyrir samstarfið á árinu.

Nik Chamberlain skrifar undir nýjan samning við Þrótt
Nik Chamberlain hefur skrifað undir nýjan 4 ára samning við Þrótt. Nik hefur þjálfað hjá Þrótti frá 2016 og náð frábærum árangri í sinni þjálfun, nú síðast fór hann með kvennalið félagsins í 5ta sæti í efstu deild sem er … Read More

Dregið í jólahappdrættinu 29.desember
Vegna fjölmargra fyrirspurna um aukin frest til sölu á happdrættismiðum í jólahappdrætti Þróttar hefur verið ákveðið að fresta drætti til þriðjudagsins 29.desember. Dregið verður fyrir hádegi þann 29.des og vinningsnúmer birt á heimasíðu félagsins ásamt vinningaskrá. Iðkendur og aðrir hafa … Read More

Sóley María skrifar undir samning við Þrótt
Sóley María Steinarsdóttir skrifaði í gær undir þriggja ára samning við Þrótt. Sóley lék með Þrótti síðastliðið sumar sem lánsmaður frá Breiðabliki. Sóley er uppalinn í Þrótti, hefur leikið með félaginu alla tíð og á baki fjölmarga leiki með yngri … Read More

Breytt æfingatafla í handboltanum
Þar sem Laugardalshöllin verður ónothæf næstu misserin verða breytingar á æfingum eftirfarandi flokka í handbolta. 6 og 7. flokkur drengja og stúlkna verður í MS kl 15.00 – 16.00 á miðvikudögum í stað þess tíma sem áður var í Laugardalshöll … Read More

Viltu tilnefna Þróttara ársins?
Líkt og áður verður Þróttari ársins útnefndur í lok árs en Þróttari ársins hefur jafnan verið sjálfboðaliði innan félagsins sem hefur sinnt óeigingjörnu starfi á árinu sem er að líða. Nú gefst öllum félagsmönnum kostur á að tilnefna Þróttara ársins … Read More

Íslensk knattspyrna 2020
Íslensk knattspyrna 2020 eftir Víði Sigurðsson er komin í forsölu og er á leið í búðir innan skamms en þetta er í fertugasta skipti sem þessi árbók knattspyrnunnar á Íslandi kemur út. KSÍ hefur um langt árabil átt samstarf við … Read More

Ungir leikmenn skrifa undir samninga
Þau Ísabella Anna Húbertsdóttir og Ólafur Fjalar Freysson hafa skrifað undir samning við Þrótt. Báðir samningar eru til tveggja ára. Ísabella kemur til félagsins frá Val, lék með Þrótti síðastliðið sumar og stóð sig vel. Hún er fædd 2001 og … Read More

Þjónusta við Þrótt hjá Jako
Hægt er að fara inn á vefverslun Jako með Þróttarvörur hér þar sem sérstakt tilboð verður á vörum Þróttar til og með 24.desember. Verslunin sjálf verður opin sérstaklega til að þjónusta Þrótt sem hér segir og vegna fjöldatakmarkana eru Þróttarar … Read More